5.11c(/d). Hundraðasta skráða leiðin í Stardal. Leiðin byrjar í sömur gróf og svarti dauði, en hliðrar til vinstri á bröttum veggnum. Kraftmiklar hreyfingar í kringum hornið og upp í grófina (EK) en léttist eftir það. Vandasamar tryggingar á köflum.
Byrjar í sömu gróf og Vikivaki og Svartidauði en fer beint upp klaufina í þakinu. Þaðan er vandasamri grófinni fylgt upp á topp. Fullt af klifri alla leið og leiðin alls ekki búin þó þakhreyfingarnar séu yfirstaðnar.
Mjó sprunga vestast í leikhúsþakinu, næsta sprunga vinstra megin við Óperu . Lúmsk þraut í gegnum þakið (EK), þaðan fer leiðin svo beint upp sprunguna milli D7 og D8.
Útilokun: leiðin er klifruð án þess að stíga út í Stúkuna, þ.e. ekki nota næstu sprungu og stuðul vinstra megin.
Rory Harrison & Sigurður Ýmir Richter, 17. júní 2020
5.11c(/d). Hundraðasta skráða leiðin í Stardal. Leiðin byrjar í sömur gróf og svarti dauði, en hliðrar til vinstri á bröttum veggnum. Kraftmiklar hreyfingar í kringum hornið og upp í grófina (EK) en léttist eftir það. Vandasamar tryggingar á köflum.
Leið 6 (vinstri lína) 🙂 20m Augljós leið. Tilvalin sem fyrsta leið í Leikhúsinu. Endar á vinstra afbrigðinu, sem er ögn stífara en hægra (en sömuleiðis skemmtilegra).
Leið 8
20m
D7 fylgt fyrsta kaflann eða rétt upp fyrir hliðrunina undir þakinu. Þar er 2-3m hliðrun til h í sprungukerfið sem myndar Efri svalir. Þeirri sprungu fylgt að og yfir 2 þök og upp.
Leið 2 🙂
5.2-5.6
Nokkur afbrigði. Auðveldasta leiðin er upp á lága syllu, beint upp sléttan vegg (5-6m), til h yfir í næstu sprungu og síðan beint af augum. Erfiðasta leiðin er beint upp vegginn að og upp á syllu og örlítið til v upp.