Prins póló 6b 5.10a
Leið númer 10 (vinstri)
Yndisleg leið, góð grip, fimm stjörnur!
Crag | Pöstin |
Type | sport |
First ascent | |
Markings |
Leið númer 10 (vinstri)
Yndisleg leið, góð grip, fimm stjörnur!
Crag | Pöstin |
Type | sport |
First ascent | |
Markings |
Tryggð með einum bolta og einum fleyg (Mjög líklega í vafasömu ástandi eins og er). 5.11d/5.12a
FF: Björn Baldursson, 1990, 8m
Leið 4
Dótaleið í óvenjulegu, skemmtilegu bergi. Fínasta tilbreyting fyrir þá sem eru farnir að þekkja boltuðu leiðirnar í Pöstunum helst til náið.
Aðal erfiðleikarnir eru í lóðréttum veggnum fyrir ofan við aðalklifursvæðið. Hægt er að komast að leiðinni upp brekkuna vinstra megin, en getur líka verið gaman að lengja leiðina og brölta upp stóru sprunguna vinstra megin við Vippuna (innan við 5.4).
Nefnd eftir uppátækjasama draugnum sem séra Magnús á Hörgslandi kvað niður á sínum tíma í mýrinni undir klifurleiðunum.
Leið 2
Stutt, auðtryggjanleg sprunga milli Heyvagninsins á horninu og Internetsins.
Saurgatið má finna í miðri leið, en þar er þröngur og djúpur mónó sem býður upp á skemmtilegan en varasaman “mónó-lás”.
(Engar upplýsingar fundust um leiðina þó svo hún hafi mjög líklega verið klifruð áður, svo gráða og nafn eru ekki heilög)
Leið 3
Innsta boltaða leiðin í gilinu.
Boltuð af Stefáni S. Smárasyni og fyrst farin af Styrmi Stefánssyni
Leið númer 15
Leiðin er 5.10d ef byrjunin er tekin beint upp eins og á myndinni, 5.10a ef byrjað er í kverkinni og hliðrað yfir í 2. bolta. Lengsta boltaða leiðin á svæðinu, rúmir 25m af gleði. Æðisleg leið!
Leið númer 14
Hin klassíska upphitunarleiðin, löng og fjölbreytt. Hentar vel fyrir byrjendur til að prófa klifur.
Leið númer 13
Boltuð í leiðslu, svolítið langt á milli bolta og eitthvað um lausa steina. Fínasta leið engu að síður.
Leið númer 12
Skemtileg leið, stendur til að laga boltun eftir sillu í miðri leið. Farið varlega!
Leið númer 11 (hægri)
Tveir krúx kaflar aðskildir með góðri hvíld. Leiðin dregur nafn sitt af stórum hnúð ofarlega í leiðinni sem hefur kunnulegt form…
Leið númer 8
Frábær leið, krúx að komast í annan bolta, góður hælkrókur er svarið við öllu.
Leið númer 7
Margt í boði að gera, leiðin er talsvert erfiðari ef vinstri veggurinn er ekki notaður. Margt í boði að stíga á á leiðinni upp
Leið númer 6
Nafnið er dregið af furðulegri tegund jóga sem frumkvöðlar voru að kynna í útvarpinu daginn sem leiðin var boltuð.
Leið númer 5
Stutt leið sem hefur samt upp á mikið að bjóða, geggjaðan mono meðal annars.
Leið 1
Ein af léttu leiðunum á svæðinu, klassísk upphitun. Nefnd eftir ryðgaða heyvagninum sem er alltaf geymdur þarna og við elskum öll.